Fundað um stöðuna í skuldamálum bænda
Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, fundaði um stöðuna í skuldamálum bænda í síðast liðinni viku með Atla Gíslasyni, þingmanni og formanni sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, Lilju Mósesdóttur formanni efnahags- og viðskiptanefndar, Jóni Gunnarssyni þingmanni, Haraldi Benediktssyni formanni Bændasamtaka Íslands, Sigurgeiri Þorgeirssyni ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Jóhanni Guðmundssyni aðstoðarmanni ráðherra, Ingimar Jóhannssyni skrifstofustjóra í ráuðneytinu og fulltrúum viðskiptabankanna sem fara með málefni bænda.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði alla aðila verða að gera sér vel grein fyrir mikilvægi fæðuöryggis, dýraverndunarsjónarmiðum og hinni samfélagslegu ábyrgð í málinu. Tryggja yrði framleiðendum með öllum ráðum rekstrarfé, þannig að framleiðsla héldist.
Á fundinum kom m.a. fram að gera megi ráð fyrir að 100-120 kúabú (um 20% heildarframleiðslunnar) á landsvísu eigi í verulegum greiðsluvanda. Þessir aðilar munu eiga í vandræðum með að fjármagna kaup á rekstrarvörum svo sem áburði og sáðvörum, en sá kostnaður gæti verið 400-500 m.kr. á næstunni. Mikilvæg er að mjólkurframleiðsla dragist ekki saman, þar sem staðan á markaðnum er þannig að framboð og eftirspurn eru í jafnvægi.
Sauðfjárbúin eru ekki jafn skuldsett og vandinn því ekki eins mikill þar. Þó má gera ráð fyrir að einhverjir sauðfjárbændur muni eiga í erfiðleikum með að fjármagna áburðarkaup.
Staða þeirra sem verst eru settir er þannig, að úrræði banka og lánastofnana virðast ekki duga til áframhaldandi reksturs. Fram kom að mun hægar hefur gengið að ganga frá skuldamálum bænda en áformað var. Á því eru ýmsar skýringar, m.a. að sum fjármögnunarfyrirtækin hafa ekki unnið með bönkunum að þessum málum eins og ráð var fyrir gert. Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna og fulltrúar ráðuneytisins tóku sérstaklega fram á fundinum, að mjög gott samstarf væri við bankana um þessi mál.
Á fundinum var ákveðið að fulltrúar bankanna myndu á næstu dögum gera ráðuneytinu grein fyrir hvað þyrfti að gera svo hægt væri að flýta þessu ferli, þannig að hægt væri að koma skuldamálum bænda í viðunandi farveg. Ákveðið var að Ingimar Jóhannsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu myndi vinna að málinu með fulltrúum viðskiptabankanna.