Fundur í stjórn Stóra Ármóts ehf. 29. mars 2010
Fundur í stjórn Stóra Ármóts ehf haldinn 29.03.2010
Fundinn sem haldinn var Selfossi sátu, Guðbjörg Jónsdóttir formaður, Guðni Einarsson, Ragnar Lárusson, Egill Sigurðsson, Gunnar Eiríksson og Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri. Á fundinn eru mættir Arnór Eggertsson endurskoðandi, Ólafur Þ. Þórarinsson bókari og skoðunarmenn Ólafur Kristjánsson og Hrafnkell Karlsson.1. Sveinn fór yfir starfsemina og útskýrði ársreikninginn. Í heild sinni gekk búrekstur vel.
2. Ársreikningur 2009. Rekstrartekjur námu alls 44,4 milljónum króna. Eigið fé samkvæmt efnahagsreikningi er í árslok 48,2 milljónir. Á árinu 2009 var hagnaður 4 milljónir króna. Stjórn Stóra Ármóts ehf leggur til að hann verði færður til hækkunar á eigin fé eins og fram kemur í skýringum ársreiknings. Stjórn Stóra Ármóts ehf og framkvæmdastjóri staðfesta hér með ársreikning ársins 2009 með undirritun sinni.
3. Reikningurinn þá borinn undir aðalfundinn og samþykktur samhljóða
Fundi slitið.
Guðni Einarsson