Greiðslumark mjólkur 116 milljónir lítra á árinu 2013
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gaf út skömmu fyrir jól, reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og beinar greiðslur til bænda verðlagsárið 2013. Breytingar frá reglugerð sama efnis fyrir árið 2012 eru ekki miklar en þó má nefna að greiðslumark mjólkur er aukið um 1,5 milljónir lítra og verður 116 milljónir lítra á verðlagsárinu 2013. Beingreiðslur verða 45,75 kr/ltr og gripagreiðslur að jafnaði 5,41 kr/ltr. Hlutfallsleg skipting A, B og C-greiðslna er óbreytt milli ára þannig að A-hluti er 47,67%, B-hluti 35,45% og C-hluti 16,88%. Skipting C-greiðslna milli mánaða verður óbreytt frá fyrra ári eða 10% í júlí, 15% í ágúst og september og 20% í október, nóvember og desember.
Óframleiðslutengdur stuðningur er 183 milljónir kr og skal ráðstafað með eftirfarandi hætti: 92,9 milljónum skal varið til gras- og grænfóðurræktar, eftir reglum sem Bændasamtökin setja, 51,8 milljónir fara í kynbótaverkefni (gæðastýring í skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar), 25,7 milljónir til nýliðunar í stétt mjólkurframleiðenda og 12,6 milljónir renna til rannsókna og þróunar í nautgriparækt.
Sjá nánar:
Reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2013