Halló Helluvað
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/kyr_slettir_ur_klaufunum-300x225.jpg)
Halló Helluvað verður á sunnudaginn 26. Maí kl. 13.30 á Helluvaði í Rangárþingi Ytra. Þá verður kúnum hleypt út í sumarið með tilheyrandi fjöri, fjárhúsið verður opið og þar gefst öllum tækiæri á að skoða og knúsa lömbin.
Aðal skemmtunin er þó í að koma saman á góðum degi og fá sér kaffi, kleinu og ábresti með kanil og fylgjast með vorinu í sveitinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir og fjölskyldunni á Helluvaði 4 hlakkar til að taka á móti gestunum.