Haustfundur BSSL í sauðfjárrækt – Þingborg
Haustfundur sauðfjárræktarinnar kl. 14.00 í Þingborg.
Sauðfjárræktarráðunautar RML Eyþór Einarsson og Fanney Ólöf Lárusdóttir fara yfir hauststörfin. Sveinn Sigurmundsson kynnir hrútakost Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands. Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé. Verðlaun fyrir lambhrúta eru gefin af Fóðurblöndunni og Blup-verðlaun eru gefin af Jötunn vélum ehf.
Léttar kaffiveitingar í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands
Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum
Sauðfjárræktarfólk hvatt til að mæta.