Íslenskur landbúnaður 2018
Stór landbúnaðarsýning verður í Laugardalshöll dagana 12. – 14. október næstkomandi. Þar verða tæplega 100 sýnendur og fjöldin allur af alls kyns nýjungum og fyrirlestrar verða á laugardag og sunnudag.
Sýningin hefst með opnunarhófi kl. 13.00 föstudaginn 12. okt. Þann dag er opnunartími 14.00–19.00, á laugardag 13. okt. 10.00–18.00 og sunnudag 14. okt. 10.00–17.00.
Miðar gilda alla helgina en miðaverð er kr. 1.000 og frítt fyrir aldraða, öryrkja, námsmenn og börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Félagsmenn í Bændasamtökum Íslands fá senda boðsmiða á sýninguna sem gilda alla sýningardagana. Tímarit Bændablaðsins kemur út vikuna fyrir sýningu og mun þjóna sem sýningarblað.
Fyrirtækið Ritsýn sf. stendur fyrir sýningunni.
Sjá má meira inná síðu Bændablaðsins http://www.bbl.is/baendabladid/um-baendabladid/landbunadarsyning-2018/
Svo er facebook-síða sýningarinnar Íslenskur landbúnaður 2018