Jafnvægisverð aprílmarkaðar er 285 kr. lítrinn
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. apríl 2011 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði 285 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Alls bárust Matvælastofnun 72 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki og var fjöldi gildra tilboða um sölu 10 talsins og fjöldi gildra tilboða um kaup 62 talsins. Alls voru boðnir 408.060 lítrar til sölu en kauptilboð bárust í 1.601.620 lítra. Hins vegar munu ekki nema 229.072 lítrar skipta um hendur eða 56% af því greiðslumarki sem boðið var til sölu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2011. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 285 kr/l.
Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 285 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 285,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. desember 2010 sýnir eftirfarandi:
* að framboð er nú 49% af því sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
* að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 83 % meiri en var á síðasta markað.
* að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5. kr/líter.
Eftir þennan markað er alveg ljóst að verð á greiðslumarki hefur hækkað allnokkuð. Um áramótin féll úr gildi heimild til þess að niðurfæra og telja til gjalda kaupverð keypts greiðslumarks á fimm árum en þess gætir ekki í lækkandi verðum.