Kaup á svínabúum skoðuð á ný
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur úrskurðað að kaup Stjörnugríss á eignum svínabúa eigi að taka að nýju til skoðunar. Þetta kemur fram í nýjum úrskurði áfrýjunarnefndarinnar.
Ekki er fallist á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í vetur um að hafast ekki að vegna samrunans þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að skilyrðin um fyrirtæki á fallanda fæti hafi verið fyrir hendi í málinu. Sönnunarbyrðin um það hvíli á samrunaðilum. Er málinu vísað til Samkeppniseftirlitsins til frekari meðferðar og nýrrar ákvörðunar. Hefur Samkeppniseftirlitið nú þegar tekið mál þetta aftur til athugunar.
Arion banki seldi svínabúin
Í febrúar sl. tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun vegna samruna sem fólst í kaupum Stjörnugríss hf. á eignum dótturfélaga Arion banka, þ.e. Rekstrarfélagsins Brautar ehf. og LS2 ehf. Þau fyrirtæki hafa haft með höndum rekstur svínabúa og rak Braut svínabú á Brautarholti á Kjalarnesi, en LS2 fór með rekstur svínabúa á Hýrumel og á Stafholtsveggjum í Borgarfirði sem áður tilheyrðu fyrirtækinu Grísagarði.
Þessi svínabú höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Þessar eignir voru seldar Stjörnugrísi eftir að bankinn hafði leitað tilboða í þær.
Markaðsráðandi staða Komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að kaup Stjörnugríss á svínabúunum myndi markaðsráðandi stöðu félagsins í svínarækt og styrki markaðsráðandi stöðu félagsins á markaðnum fyrir slátrun á svínum.
Undir rekstri málsins var því haldið fram af samrunaaðilum að heimila yrði samrunann vegna reglna samkeppnisréttarins um fyrirtæki á fallandi fæti (e. failing firm defence). Viðurkennt er að slík aðstaða fyrirtækis geti leitt til þess að heimila beri samruna. Ástæðan er sú að í slíkum tilvikum stafa samkeppnishömlurnar ekki af samrunanum sem slíkum heldur af erfiðri stöðu hins yfirtekna fyrirtækis. Féllst Samkeppniseftirlitið á þetta sjónarmið samrunaðila. Máli þessu var skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í nýjum úrskurði hennar er staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samrunin myndi og styrki markaðsráðandi stöðu Stjörnugríss á umræddum mörkuðum.
Sjá nánar á vef Samkeppniseftirlitsins