Kjaramálaályktun við lok Búnaðarþings
Búnaðarþingi lauk í gær og var eftirfarandi kjaramálaályktun samþykkt við lok þingsins:
Eins og Bændasamtök Íslands hafa bent á síðustu mánuði hefur rekstrarkostnaður í landbúnaði hækkað verulega um heim allan. Hliðstæð þróun blasir við hér og rekstrarútgjöld íslenskra bænda hafa á síðustu vikum og mánuðum hækkað meira en áður hefur þekkst.
Þessar hækkanir eru að mestu leyti hluti af alþjóðlegri þróun sem nú leiðir hvarvetna til hækkandi matvælaverðs. Sem dæmi má nefna gríðarlegar hækkanir á fóðurverði, sáðvörum, olíu og ekki síst á áburðarverði sem hefur hækkað sem næst 80%. Þá hefur orðið óheyrileg hækkun á fjármagnskostnaði sem á sér bæði uppruna í alvarlegu ástandi á fjármálamörkuðum heimsins og stöðu efnahagsmála á Íslandi. Afleiðingar þessara hækkana eru þær að rekstrarforsendur í íslenskum landbúnaði eru brostnar að óbreyttu afurðaverði. Þessi staða er ekki aðeins alvarleg fyrir bændur, heldur ógnar hún einnig aðgengi íslenskra neytenda að gæðamatvælum á sanngjörnu verði.
Framtíð íslensks landbúnaðar og þar með mataröryggi þjóðarinnar, er undir því komið að bændur standi af sér núverandi þrengingar.
Við þessar aðstæður leggur Búnaðarþing 2008 áherslu á að afurðaverð til bænda verður að hækka í samræmi við aukinn tilkostnað.
Að öðru leyti leggur þingið áherslu á eftirfarandi:
1. Tollar á innfluttar landbúnaðarvörur verði ekki lækkaðir.
2. Samkvæmt gildandi lögum fellur útflutningsskylda kindakjöts niður 1. júní 2009. Lögð er áhersla á að núverandi skipan haldist og útflutningsskyldunni beitt áfram.
3. Til að draga úr áhrifum gríðarlegrar hækkunar á áburðarverði, leggi ríkissjóður fram fjármagn til að mæta þessum kostnaðarauka árið 2008 og stuðli þannig að lægra verði til neytenda.
4. Gjöld á innfluttar fóðurblöndur verði felld niður.
5. Beita þarf áfram öllum tiltækum faglegum leiðum til að lækka framleiðslukostnað íslenskra búvara.“
Aðarar ályktanir þingsins má finna á vef Bændasamtakanna með því að smella hér.