Kjarnfóður lækkar í verði.
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/fodrun1-300x199.jpg)
Á undanförnum vikum hafa kjarnfóðursalar verið að lækka verð á fóðri. Nú síðast var það SS sem lækkaði verð á öllu fóðri um 2% og bætiefnablöndum um 7%. Áður höfðu Fóðurblandan, Bústólpi, Lífland og Landstólpi lækkað kjarnfóðurverð. Á vefsíðu Landssambands kúabænda naut.is má finna verðlista kjarnfóðurs eins og hann lítur út 15. janúar 2014.