Kýrnar á Stóra-Ármóti komnar út í sumarið
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/06/kyr_skvetta_hvit.jpg)
Eins og víða í sveitum landsins er nú búið að hleypa kúnum á Stóra-Ármóti út í sumarið. Þær voru útiverunni fegnar og létu smá úðarigningu ekki setja sig út af laginu. Bústjórahjónin nýttu sér sólarleysið en góðviðrið í gærkvöldi til að venja kýrnar við útiveruna.