Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur
Á vef Matvælastofnunar mast.is eru opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur, þann 1. apríl 2014 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 260 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.
Alls bárust Matvælastofnun 32 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.
Fjöldi gildra tilboða um sölu = 28
Fjöldi gildra tilboða um kaup = 2
Greiðslumark sem boðið var fram = 1.891.961 lítrar.
Greiðslumark sem óskað var eftir = 71.784 lítrar.
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 35.000 lítrar.
Kauphlutfall viðskipta er 48,76 %
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 260 kr/l.
Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 260 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 260,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2013 sýnir eftirfarandi:
að framboð er nú 182,9 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 6,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
að verð á greiðslumarki nú er 60 krónum lægra en það var á markaði þann 1. nóvember 2013