Ný auglýsing um varnarlínur
Matvælastofnun hefur birt í Stjórnartíðindum nýja auglýsingu um skipan varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma. Fyrri auglýsing sem birtist 21. ágúst sl. var ekki rétt og hefur nú verið birt ný og leiðrétt útgáfa.
Auglýsingin birtist einnig í Bændablaðinu sem út kom í dag og þar er einnig að finna grein Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis þar sem hann gerir grein fyrir því sem í auglýsingunni felst. Sauðfjárbændur eru hvattir til þess að kynna sér hvort tveggja vel.
Auglýsingin fer hér á eftir:
AUGLÝSING
um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.
Að tillögu Matvælastofnunar, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnarlína í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma:
1. gr.
Aðalvarnarlínur.
Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
1.
Hvítárlína:
Ölfusá, Hvítá að Jökulfalli, Jökulfall og Jökulkvísl í Blágnípujökul.
2.
Sogs- og Bláskógalína:
Sog frá Ölfusá um Þingvallavatn og úr því um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvígindisfell.
3.
Brúarárlína:
Brúará frá Hvítá í Brúarárskörð um Rótarsand í gíg í Lambahrauni og í gilið í Hagafelli.
4.
Hvalfjarðarlína:
Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Brunnum við Uxahryggi í Hrúðurkarla við Þórisjökul.
5.
Snæfellslína:
Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð.
6.
Hvammsfjarðarlína:
Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxárdalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðarhorns.
7.
Gilsfjarðarlína:
Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð.
8.
Kollafjarðarlína:
Úr Kollafirði í Ísafjarðarbotn.
9.
Tvídægrulína:
Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnarvatn stóra í Langjökul við Jökulstalla.
10.
Miðfjarðarlína:
Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra.
11.
Vatnsneslína:
Úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við ósa Víðidalsár.
12.
Kjalarlína:
Milli Langjökuls og Hofsjökuls.
13.
Blöndulína:
Blanda.
14.
Héraðsvatnalína:
Héraðsvötn og Austari-Jökulsá.
15.
Eyjafjarðarlína:
Eyjafjarðará sunnan Bringu að Skjónafelli og að Miklafelli í Hofsjökli.
16.
Sprengisandslína:
Úr Miklafelli í Hofsjökli um Fjórðungakvísl að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatnajökul.
17.
Skjálfandalína:
Skjálfandafljót og í Tungnafellsjökul.
18.
Fjallalína:
Jökulsá á Fjöllum.
19.
Jökuldalslína:
Jökla (Jökulsá á Brú, Dal) og Hálslón.
20.
Lagarfljótslína:
Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót.
21.
Hamarsfjarðarlína:
Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vesturdalsjökul.
22.
Breiðamerkursandslína:
Jökulsá á Breiðamerkursandi.
23.
Skeiðarársandslína:
Sandgígjukvísl.
24.
Tungnaárlína:
Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli.
25.
Markarfljótslína:
Markarfljót og Fremri-Emstruá.
26.
Þjórsárlína:
Þjórsá.
2. gr.
Aukavarnarlínur.
Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
1.
Smjörfjallalína:
Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Dalsá og til sjávar.
2.
Brekkuskógslína:
Fullsæll frá Brúará að mörkum Efri-Reykja og Brekku og í þeim að Brúará við brú á Kóngsvegi.
3. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 717/2009 um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma. Auglýsingin tekur þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. september 2009.
Jón Bjarnason.
Arnór Snæbjörnsson.