Nýr formaður Samtaka ungra bænda
Jóhanna María Sigmundsdóttir frá Látrum í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp er nýkjörinn formaður Samtaka ungra bænda. Kosning fór fram á aðalfundi sem haldinn var á Egilsstöðum sl. laugardag.
Aðrir í stjórn eru Jóna Björg Hlöðversdóttir, Kjartan Guðjónsson, Sindri Fannar Sigurbjörnsson og Þórir Níelsson. Kjartan og Sindri Fannar er nýir í stjórn.
Búnaðarsamband Suðurlands óskar nýjum stjórnarmönnum til hamingju og óskar þeim velfarnaðar í starfi.
Í varastjórn eru Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, Jón Hjalti Eiríksson, Gunnar Guðbjartsson, Anna Lóa Sveinsdóttir og Hermann Ingi Gunnarsson.