Nýr formaður Samtaka ungra bænda
Aðalfundur Samtaka ungra bænda var haldinn 22. mars sl. í Úthlíð í Biskupstungum. Á fundinum var kosin nýr formaður Einar Freyr Elínarson frá Sólheimahjáleigu í Mýrdal, en Jóhanna María Sigmundsdóttir, alþingismaður og fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér. Þá voru þeir Ástvaldur Lárusson frá Núpi í Dýrafirði og Orri Jónsson frá Lundi í Lundareykjadal kosnir nýjir inn í stjórn en fyrir sátu þar þau Þórir Níelsson á Torfum og Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, Selfossi. Gaman er að geta þess að Einar er barnabarn Einars Þorsteinssonar ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands um árabil og mörgum bændum á Suðurlandi vel kunnugur. Nánar um nýja formannin og stefnu SUB má lesa á bbl.is og ungurbondi.is