Ráðherra skipar starfshóp um vanda svínaræktar
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp til að leysa úr þeim vanda sem steðjar að svínarækt í landinu. Þetta var ákveðið á fundi sem ráðherra hélt með fulltrúum Svínaræktarfélags Íslands, Matvælastofnunar, Bændasamtaka Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Vandi svínaræktar á Íslandi hefur verið í umræðu að undanförnu en greinin hefur nú á einum áratug gengið í gegnum tvö tímabil offramleiðslu, gjaldþrota og verðfalls afurða. Samhliða hefur þróunin verið í átt að aukinni samþjöppun í eignarhaldi. Mikil afskipti bankastofnana hafa síðan veikt samkeppnisgrundvöll smærri rekstrareininga.
Til starfshóps um málið verða kallaðir fulltrúar framleiðenda, neytenda, dýraverndar í landinu og eftirlitsaðila. Vinnunni verður stjórnað af starfsmönnum ráðuneytisins en markmiðið er að fjalla um málefni greinarinnar á breiðum grundvelli. Þar koma til álita þau umfjöllunarefni aðbúnaðar og meðferðar svína sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum að undanförnu. Stefnt er að því að ný aðbúnaðarreglugerð líti dagsins ljós fyrir lok árs. Jafnframt verður m.a. horft til nýtingar á innlendu fóðri í svínarækt, þátt svínaræktar í fæðuöryggi og öryggismál sem tengjast svínarækt í nágrenni þéttbýlis.
Þá verður leitað samstarfs við umhverfisráðuneyti varðandi úrgangsmál og aðra umhverfisþætti er snúa að svínaræktinni.