Ræktun gegn riðu

 

Ræktun gegn riðu – fræðslufundur mánudagskvöldið 30. október í Þingborg kl 20:00

Fræðslufundir með Dr. Vincent Béringue og sérfræðingum frá RML, MAST, Keldum og LBHÍ.

Mikið hefur áunnist á síðustu tveim árum sem tengist baráttunni við riðuveiki. Stóraukin þekking á þeim arfgerðum sem íslenska sauðkindin býr yfir m.t.t. næmi gegn riðu hefur skapað grundvöll fyrir breyttum baráttuaðferðum við sjúkdóminn.  Framundan eru því breyttar áherslur í sauðfjárræktinni og má segja að verið sé að taka fyrstu skrefin í því að bylta sauðfjárstofninum m.t.t. riðumótstöðu.

Á næstu dögum munu Bændasamtök Íslands í samstarfi við fleiri aðila standa fyrir fræðslufundum.  Fundunum er ætlað að svara ýmsum spurningum sem tengjast næmi arfgerða, áhrif innleiðingar verndandi arfgerða á stofninn, ræktunaráherslur og almenn atriði varðandi baráttuna við riðuveiki. Meðal fyrirlesara er frakkinn Dr. Vincent Béringue, einn helsti riðusérfræðingur heims, en hann hefur á síðustu mánuðum lagt stund á umfangsmiklar rannsóknir á næmi þeirra mismunandi arfgerða sem finnast í íslensku sauðfé m.t.t. riðuveiki og mun nú kynna niðurstöður sínar.

Aðrir frummælendur verða Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda BÍ, Stefanía Þorgeirsdóttir, sérfræðingur á Keldum, Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð, Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá MAST, Sigurbjörg Bergsdóttir, sérgreinadýralæknir hjá MAST, Jón Hjalti Eiríksson, LBHÍ, Þórdís Þórarinsdóttir, RML og Eyþór Einarsson RML.

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Heitt á könnunni og léttar veitingar í boði.


back to top