Sauðburður á Stóra-Ármóti
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2014/04/Sauðburður_2014_1-300x288.jpg)
Sauðburður er hafinn á Stóra-Ármóti eins og víða í sveitum landsins þessa dagana. Alltaf er þessi árstími skemmtilegur og gaman að fylgjast með lömbunum stíga sín fyrstu skref út í heiminn. Sauðburður fer rólega af stað en ætti að vera kominn á fullt seinnipartinn í vikunni. Meðfylgjandi eru sauðburðarmyndir frá Stóra-Ármóti.