Sauðfjárbændur vilja endurskoðun á niðurfellingum varnarlína
Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda lauk á Hótel Sögu í gær. Helgi Haukur Hauksson var kjörinn fulltrúi Austurlands í stjórn samtakanna í stað Baldurs Grétarssonar sem hafði lokið kjörtíma sínum. Þórarinn Pétursson var endurkjörinn í stjórn sem fulltrúi Norðurlands. Ekki var kosið um aðra fulltrúa í stjórninni.
Fundurinn afgreiddi alls 39 mál um fjölbreyttustu málefni og fara samþykktir fundarins hér á eftir:
Samþykktir aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda 2010
Birt með fyrirvara um prentvillur
Samþykktir frá fagnefnd
1.1. Um eyrnamerkingar
Aðalfundur LS 2010 skorar á landbúnaðarráðherra, við innleiðingu nýrra ESB-reglugerða um merkingar gripa, að fylgja eftir ítrekuðum óskum sauðfjárbænda um undanþágu frá ákvæðum um merkingu með tveimur plötumerkjum í sauðfé, vegna sérstöðu landsins.
Greinargerð:
Þrátt fyrir ítrekaðar óskir um þessar undanþágur virðist, af hálfu stjórnvalda, ekki ennþá hafa verið tekið tillit til sjónarmiða íslenskra sauðfjárbænda í málinu. Fullyrt er að Ísland eigi góða möguleika á undanþágu frá þessum ákvæðum sé þess óskað og gild rök lögð fram til stuðnings málinu.
Meðal þess sem sauðfjárbændur krefjast er að fá íslensku eyrnamörkin viðurkennd sem aðra merkinguna og þar sem lambamerkingar innan ESB virðast yfirleitt ætlaðar sem búsmerkingar ættu íslensku mörkin að halda fullu gildi, líkt og tattóvering er viðurkennd merkingaraðferð í annað eyra innan ESB. Flutningar á lifandi fé inn og út úr landinu eru ekki fyrir hendi þar sem Ísland er afskekkt eyland og ekki er hefð fyrir viðskiptum með sláturlömb milli búa innanlands eins og tíðkast í ESB-löndunum. Ein sérstaðan er sú að ríflega 90% íslenska sauðfjárstofnsins er skráður í opinbert skýrsluhald Bændasamtaka Íslands. Í ljósi ofantalinna atriða telur fundurinn algerlega óþarft að hérlendis verði merkingarreglum ESB fylgt út í æsar.
1.2. Um flokkun á ull
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir til stjórnar Landssamtaka sauðfjárbænda að hún beiti sér fyrir því að tekinn verði upp nýr ullarflokkur fyrir svartflekkótta og gráflekkótta ull.
Greinargerð.
Þessir litir eiga að nýtast Ístex sem efniviður í gráan lit og því synd að setja þetta hráefni í ruslflokk sem er nánast verðlaus.
1.3. Um kjötmat
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 ítrekar fyrri ályktanir um vandað samræmt kjötmat hjá afurðastöðvum sauðfjár.
Greinargerð:
Enn virðist vera misbrestur á eðlilegu samræmi milli kjötmatsmanna. Hægt er að benda á dæmi því til staðfestingar.
1.4. Um fjarvis.is
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til stjórnar LS að tryggt verði fjármagn svo áfram verði unnið að þróun Fjarvis.is meðal annars með vinnuhagræðingu í huga. Jafnframt verði komið á fót samráðshóp notenda til ráðgjafar um áframhaldandi þróun forritsins.
Greinargerð:
Nauðsynlegt er að allur gagnaflutningur gangi snurðulaust fyrir sig. Það væri t.d. mikilvægt að skrá lifandi þunga með heilum skrám (Excel) þar sem á markaði eru vogir sem hægt er að keyra vigtun beint inn í tölvu. Eins að allur gagnaflutningur milli lófatölvu og fjarvis.is sé skilvirkur og öruggur.
Fyrir liggur að hluti sauðfjárbænda ætlar að nýta sér hagræðingu sem felst í notkun örmerkja. Því er nauðsynlegt að fjarvis.is sé tilbúinn að takast á við það verkefni hnökralaust. Það er ljóst að örmerking sauðfjár er töluvert kostnaðarsöm. Sá kostnaður verður að nást til baka með léttari og minni vinnu við fjárrag og slátrun. Taka þarf saman efni þar sem þessi nýja tækni og þeir möguleikar sem hún býður upp á er kynnt.
1.5. Um áherslur í ræktunarstarfi
Aðalfundur LS samþykkir að beina því til fagráðs í sauðfjárrækt að skoðað verði hvort ástæða sé til að breyta hlutfalli milli fitu og gerðar í uppgjöri afkvæmarannsókna hrúta.
1.6. Um samstarf við Landbúnaðarháskólann
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hvetur til nánara samstarfs LS og LBHÍ um að efla rannsóknar- og fræðslustarf í sauðfjárrækt. Jafnframt að standa vörð um Hestbúið.
1.7. Um kennslubók í sauðfjárrækt
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 fagnar vinnu LBHÍ við gerð kennsluefnis í sauðfjárrækt og leggur áherslu á að þeirri vinnu verði hraðað. Jafnframt hvetur fundurinn LBHÍ til að setja kennsluefnið út á netið í prenthæfu formi.
1.8. Um stefnumótun í sauðfjárrækt
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til stjórnar LS að áfram verði unnið við stefnumótun í sauðfjárrækt.
Samþykktir frá allsherjarnefnd
2.1 Varnarlínur
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að tryggja nægt fjármagn til viðhalds varnarlína. Aflagðar varnarlínur skal bjóða sveitarfélögum til yfirtöku, að öðrum kosti verði aflagðar girðingar fjarlægðar.
2.2 Varnarlínur
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að endurskoða ákvörðun um niðurfellingu varnarlína þar sem gengið var mun lengra en starfshópur um endurskoðun varnarlína lagði til í skýrslu sem kom út 2006.
Greinargerð: Óánægju hefur gætt víða um land vegna skorts á samráði við hagsmunafélög bænda og sveitarstjórnir þegar ákvarðanir voru teknar um niðurlagningu varnarlína og upptöku nýrra
2.3 Um líflambasölusvæði
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til Matvælastofnunnar að leggja ríka áherslu á að verja viðurkennd líflambasölusvæði fyrir sjúkdómum sem ekki eru þekktir á viðkomandi svæði. Mikilvægt er að fyllstu varúðar sé gætt á svæðum næst líflambasölusvæðum til að tryggja heilbrigði sölulamba. Jafnframt er óskað eftir að kanna möguleika á því að taka inn ný líflambasölusvæði sem uppfylla skilyrði reglugerðar um líflambasölu 550/2008.
2.4. Um aðild Íslands að ESB
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 telur að hagsmunum Íslendinga sé betur borgið utan ESB, hafnar alfarið aðild að sambandinu og styður jafnframt málflutning Bændasamtaka Íslands. Fundurinn skorar á stjórnvöld að draga til baka umsókn að ESB og beina kröftum sínum að uppbyggingu íslensks samfélags.
2.5 Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 telur mikilvægt að afurðastöðvar skoði alla möguleika til hagræðingar, hvort heldur sé með samvinnu þeirra um ákveðin verkefni, s.s. útflutning og/eða með sameiningu afurðastöðva.
Samhliða er nauðsynlegt að óska eftir breytingu á 71. grein búvörulaga, þess efnis að kjötafurðastöðvar fái samskonar heimild og mjólkurafurðastöðvar til að sameinast og gera með sér samkomulag um verkaskiptingu til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu afurða, til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur.
2.6. Um þjóðlendur
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hvetur Bændasamtökin til að standa þétt að baki Landsamtök landeigenda á Íslandi í baráttu þeirra í þjóðlendumálum.
Samþykktir frá markaðs- og kjaranefnd
3.1. Um samkeppnislög
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 telur að endurskoða þurfi samkeppnislög.Á sama tíma og bændum er almennt bannað að fjalla um kjaramál sín hefur orðið gífurleg samþjöppun á smásölumarkaði Nú hefur það gerst að bankarnir hafa yfirtekið rekstur nokkurra stórra búa á Íslandi. Það er einnig ljóst að sérstaða landbúnaðarins er slík að ekki er hægt að fella hann undir samkeppnislög líkt og nú er. Eigi íslenskir bændur að ná árangri með sínar landbúnaðarvörur á erlendum mörkuðum, á grundvelli hreinleika og sérstöðu, er nauðsyn að auka samvinnu afurðasölufyrirækja og jafnvel sameina þau. Ofangreint sýnir að samkeppnislög eru úr öllum takti við raunveruleikann og þarfnast endurskoðunar.
3.2. Um verðmyndun sauðfjárafurða.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til stjórnar LS að gera könnun á verðmyndun á sauðfjárafurðum frá heildsölustigi til neytenda.
3.3. Um raforkuverð
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 mótmælir harðlega miklum hækkunum á rafmagnskostnaði undanfarin ár. Þessi hækkun hefur einkum komið illa við íbúa landsbyggðarinnar. Hún er einnig óeðlileg í ljósi þess að á mörgum svæðum er einungis boðið upp á eins fasa rafmagn sem er ekki sambærilegt að gæðum og þriggja fasa rafmagn.
3.4 Um verðmyndun olíu
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á stjórn LS að gera úttekt á verðmyndun á litaðri olíu og verðþróun samanborið við ólitaða olíu og bensín.
3.5. Skattar á eldsneyti
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á fjármálaráðherra að lækka nú þegar álögur á díselolíu og bensín.
Greinargerð:
Hinar óhóflegu álögur sem nú eru á eldsneytisverði koma hvað harðast niður á fólki í dreifðum byggðum landsins sem þarf oft á tíðum að sækja atvinnu og þjónustu um langan veg. Einnig leiðir þessi óhóflega skattheimta til allt of mikils flutningskostnaðar. Vert er að vekja athygli á að vegaþjónusta er nú skert frá því sem áður var.
3.6 Um markaðssetningu á kindakjöti
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til stjórnar LS, Markaðsráðs kindakjöts og Sláturleyfishafa að gera athugun á því meðal neytenda hvað þeim finnst mega betur fara í markaðssetningu á kindakjöti. Einnig á það sama við framsetningu þess í verslunum.
Greinargerð:
Innanlandsmarkaðurinn er okkar dýrmætasti markaður. Nauðsynlegt er að hlúa vel að honum og nýta öll þau sóknarfæri sem þar kunna að leynast til aukinnar sölu á okkar afurðum
3.7. Um hækkun kjötskoðunargjalds
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 mótmælir harðlega hækkun MAST á gjaldi fyrir kjötskoðun í sláturhúsi um tæplega 110%, úr 2,10 kr/kg í 4,40 kr/kg. Sé raunkostnaður MAST við kjötskoðun 4,40 kr/kg krefjast Landsamtök sauðfjárbænda þess að MAST finni leiðir til að draga úr honum.
3.8. Um sláturkostnað við heimtöku
Aðalfundur LS beinir því til sláturleyfishafa að stilla sláturkostnaði vegna heimtöku á kindakjöti í hóf. Vaxandi eftirspurn er eftir upprunavottuðu kjöti beint frá býli. Skynsamlegt er að nýta þau sóknarfæri sem því fylgja, enda styður það við kindakjötsmarkaðinn í heild og stækkar hann. Mikilvægt er því að sláturleyfishafar veiti sem mest svigrúm til heimtöku kjöts úr sláturhúsum og auðveldi framleiðendum beina sölu afurða.
3.9. Um breytingar á gæðastýringargreiðslum
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hafnar alfarið hugmyndum Landsamtaka sláturleyfishafa um breytingar á gæðastýringargreiðslum.
3.10. Lög um olíugjald.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 beinir því til stjórnar Bændasamtaka Íslands að kanna hvort bændur sem greiða fullt reiknað endurgjald í landbúnaði, geti fengið heimild til að aka einum bíl sem er á rauðum númerum (vsk bílar) á litaðri olíu.
3.11 Ályktun sláturleyfishafa um geymslugjöld.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 telur rétt að meðferð fjármuna sem ætlaðir eru í markaðsstarf og birgðahald í sauðfjársamningi verði með sama hætti og verið hefur.
Komi upp sú staða að sláturleyfishafar geri ekki samning um þessa fjármuni, líkt og verið hefur, telur fundurinn rétt að þeir peningar sem eru á þessum lið samningsins færist á gæðastýringargreiðslur.
3.12 Kvótamarkaður.
Aðalfundur Landsamtaka sauðfjárbænda 2010 telur ólíklegt að hugmyndir LK um kvótamarkað henti sauðfjárbændum. Fundurinn telur þó eðlilegt að sauðfjárbændur fylgist með þróun málsins og hvernig til tekst við að koma slíkum markaði á.
Samþykktir frá félagsmálanefnd
4.1 Um verðlagningu dýralyfja.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hvetur stjórn LS til þess að halda áfram vinnu sinni að auknu verðlagseftirliti svo sem með birtingu verðskráa og verðkönnunum á algengustu lyfjum fyrir sauðfé.
4.2. Um upplýsingagjöf varðandi sauðfjársjúkdóma.
Aðalfundur LS beinir því til Matvælastofnunnar að upplýsingar um staðfesta sjúkdóma innan hvers varnarhólfs verði aðgengilegar fyrir sauðfjárbændur og jafnframt veiti MAST bændum leiðbeiningar um fjárkaup milli búa innan þeirra.
4.3. Um dýravernd og vörslusviptingu.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda hvetur til að vinnu við endurskoðun laga um búfjárhald og dýravernd verði hraðað, með það að markmiði að stytta og gera ferli vörslusviptingar skilvirkara.
Greinargerð:
Svo virðist sem ferli vörslusviptingar á búfé í þeim málum er varða dýravernd og þar sem aðbúnaði og hirðingu búfjár er ábótavant, sé allt mjög þungt í vöfum og óskilvirkt. Leita þarf leiða til að stytta þetta ferli og gera það skilvirkara. Það er ólíðandi að alvarleg dýraverndarmál geti verið að veltast í dómskerfinu í lengri tíma.
4.4 Um söfnun unglambaskinna
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hvetur alla sauðfjárbændur til að hirða unglambaskinn af lömbum sem drepast hjá þeim á vorin. Fundurinn fagnar frumkvæði Sjávarleðurs á Sauðárkróki sem hefur gert góða hluti í markaðssetningu og úrvinnslu þessara skinna sem annars færu til ónýtis.
4.5. Um kynjahlutföll í trúnaðarstörfum LS
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á sauðfjárbændur af báðum kynjum til að taka virkari þátt í félagsmálum í félagskerfi bænda.
4.6. Um sameiningu ráðuneyta
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 tekur undir með ályktun Búnaðarþings 2010 að mótmæla harðlega fyrirhugaðri sameiningu sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis við iðnaðarráðuneyti.
4.7 Landgræðslan a)
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 felur stjórn LS að ganga til samninga við Landgræðsluna um eftirlit á landnýtingarþætti gæðastýringar.
4.8 Landgræðslan b)
Aðalfundur Landsamtaka sauðfjárbænda 2010 veitir stjórn LS heimild til að veita 5 milljónum króna á ári til næstu fimm ár í átaksverkefni um aukin gæði beitilanda í samstarfi við Landgræðsluna.
Samþykktir frá fjárhagsnefnd
5.1 Um skuldavanda bænda
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á stjórnvöld að setja fram raunhæfar úrlausnir á skuldavanda bænda. Mikilvægt er að sem fæstar jarðir fari úr matvælaframleiðslu til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar, vegna þess vanda sem hrun bankakerfisins hefur valdið.
Fundurinn skorar á stjórnir LS og Bændasamtakanna að hafa vakandi auga með aðgerðum fjármálafyrirtækja varðandi úrlausnir þeirra fyrir sauðfjárbændur.
5.2. Um búnaðarlagasamninginn
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra að endurnýja búnaðarlagasamninginn sem fyrst og verði hann ekki skertur frekar en orðið er. Óeðlilegt er að hið opinbera geri auknar kröfur á BÍ á sama tíma og framlög eru skert. Sú staða sem nú er uppi er óviðunandi.
5.3. Um staðsetning aðalfundar 2011
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda samþykkir að aðalfundur og árshátíð sauðfjárbænda 2011 verði haldin í Reykjavík
5.4. Fjárhagsáætlun LS
Aðalfundur LS 2010 samþykkir fjárhagsáætlun samtakanna eins og hún liggur fyrir.
5.5 Reikningar LS
Aðalfundur LS 2010 samþykkir reikninga samtakanna eins og þeir liggja fyrir.