Síðustu bændafundir BÍ í dag
Almennum haustfundum Bændasamtakanna lýkur í dag, mánudaginn 6. desember, með fundum á Smyrlabjörgum kl. 14.00 og á Geirlandi kl. 20.30.
Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja. Nýgerður búnaðarlagasamningur verður til umfjöllunar og spurt verður hvernig unnt er að verja kjör bænda í erfiðu efnahagsástandi.