Skálað í repjuolíu
Félag kúabænda á Suðurlandi hélt í gær kynningarfund um repjuræktun og olíuframleiðslu í fundarsal MS á Selfossi. Fyrirlesari var Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri. Sagt var frá fundinum í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi og var ma.a rætt við Ólaf Eggertsson og Þóri Jónsson bónda á Selalæk og formann Félags kúabænda á Suðurlandi.
Fréttina er hægt að horfa á með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.