Sláttur hafinn á Stóra-Ármóti
Á Stóra-Ármóti hófst fyrsti sláttur í dag. Þroski virðist túngrasa er nokkuð seinni en undanfarin ár og sennilega vika í að vallarfoxgrasið skríði. Gera má ráð fyrir að margir setji í sama gír og bændurnir á Stóra-Ármóti, enda veðurútlit gott næstu daga og útlit fyrir gott heyskaparveður.