Þróunarverkefni í nautgriparækt
Á vef Bændasamtaka Íslands bondi.is er auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í nautgriparækt.Styrkt eru verkefni sem talin eru styrkja íslenska nautgriparækt og falla undir það að vera rannsóknir eða þróunarverkefni í nautgriparækt. Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð fylgja. Aðeins er tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Bændasamtaka Íslands.