Niðurstöður heysýna 2011
Heysýni sumarsins sýndu að almennt var orka túngrasanna komin undir þau gildi sem ásættanleg þykja til mjólkurframleiðslu upp úr 20. júní. Uppskerumagnið var misjafnt og víða ágætt. Sauðfjár- og hrossabændur slógu á nokkuð eðlilegum tíma miðað við sínar aðstæður en eðli málsins samkvæmt tefur vorbeit fyrir slætti þar sem fé er í heimahögum.
Líkt og undanfarin ár er mikill meirihluti heyfengs bænda geymdur í plasthjúpuðum rúlluböggum eða ferböggum eða vel yfir 90%. Síðustu misseri hafa nokkrir kúabændur hins vegar þreifað sig áfram með verkun votheys í flatgryfjum eða útistæðum og hélt sú þróun áfram í ár. Eru það einkum þeir bændur sem fóðra kýr sínar á heilfóðri. Gróffóður sem fer í heilfóðrið þarf að saxa og því um að gera að saxa það strax við hirðingu. Hagkvæmni þessarar heyverkunaraðferðar er einkum bundin við nýtingu verktaka og eykst hagkvæmni þessarar verkunaraðferðar með aukinni bústærð og auknu heymagni.
Alls bárust niðurstöður úr 362 heysýnum (hirðingarsýnum og verkuðum sýnum) af Suðurlandi frá liðnu sumri. Eru þetta talsvert færri sýni en undanfarin ár. Flest sýnin eru úr 1. slætti og meirihlutinn tekinn í júnímánuði. Niðurstöður má sjá í töflu 1. Þar eru einnig gefnar meðaltalstölur frá árunum 2010 og 2009. Þess skal getið að sýnin eru í öllum tilvikum bæði úr 1. og 2. slætti, en án grænfóðurs. Í eftirfarandi töflu koma upplýsingar um niðurstöður úr fyrstu 479 sýnum ársins 2010.
Tafla 1. Fjöldi sýna, þurrefni, orka og prótein | |||
2011 | 2010 | 2009 | |
Fjöldi sýna | 345 | 479 | 386 |
Þurrefni % | 59 | 52 | 51 |
Orkugildi (FEm/kg þe.) | 0,79 | 0,79 | 0,80 |
Heildarprótein, g/kg þe. | 152 | 156 | 143 |
AAT, g/kg þe. | 80 | 70 | 69 |
PBV, g/kg þe. | 13 | 34 | 25 |
Sýnin eru mjög svipuð milli ára en þó bera að geta þess að heyið er heldur þurrara árið 2011 miðað við hin tvö árin. Allar tölur eru miðaðar við grömm í kílói þurrefnis (g/kg þe.)
Tafla 2. Steinefnatölur í heysýnum | |||
2011 | 2010 | 2009 | |
Calsíum (Ca) g/kg þe. | 3,5 | 3,6 | 3,3 |
Fosfór (P) g/kg þe. | 2,7 | 2,9 | 2,9 |
Magnesíum (Mg) g/kg þe. | 2,0 | 2,2 | 2,0 |
Kalí (K) g/kg þe. | 17 | 19 | 18 |
Natríum (Na) g/kg þe. | 1,0 | 1,2 | 1,1 |
Brennisteinn (S) g/kg þe. | 2,0 | 2,0 |
|
Steinefnatölurnar í heysýnum milli ára eru nokkuð svipaðar. Þess má þó geta að þær lækka í öllum efnum nema fyrir brennistein. Áberandi var hvað kalí (K) var lágt í sumum heysýnum.
Eins og alkunnugt er fellur orku- og próteingildi grasa með auknum þroska. Í svokallaðri alhliða góðri töðu sem ætluð er sem framleiðslufóður er miðað við að orkan sé 0,8 FEm/kg þe. en heildarprótein um 150 g/kg þe. Spretta fór mjög snemma af stað á liðnu ári og fóðurgildi féll því fyrr en menn töldu. Sífellt fleiri kúabændur láta ákveðinn hluta túna spretta meira en sem nemur skriði vallarfoxgras með það að markmiði að afla sérstaks geldstöðufóðurs fyrir kýrnar. Er líklegt að nokkur hluti sýna sem kom um og eftir miðjan júlí sé af slíku fóðri. Öflun geldstöðuheyja er mjög af hinu góða en hefur óneitanlega áhrif á meðalfóðurgildi heyja úr 1.slætti eins og það er sett fram hér.
Þegar litið er á samanburð efnagreininga úr 1. slætti, 2. slætti og grænfóðri koma eftirfarandi niðurstöður fram sumarið 2011;
Tafla 3. Niðurstöður ársins 2011. Fjöldi sýna, orku- og próteingildi | ||||||
Tegund | Fjöldi | Meltanleiki | FEm/kg | Prótein | AAT | PBV |
1. sláttur | 295 | 70 | 0,79 | 148 | 79 | 11 |
2. sláttur | 50 | 71 | 0,81 | 178 | 86 | 28 |
Meðaltal 1 .sl+2.sl | 345 | 70 | 0,79 | 152 | 80 | 13 |
Grænfóður | 15 | 72 | 0,83 | 170 | 86 | 20 |
Fóðrið er mjög svipað milli slátta nema að próteinið er heldur hærra í hánni.
Tafla 4. Niðurstöður ársins 2011. Steinefnatölur og þurrefni | |||||||
Tegund | Ca | P | Mg | K | Na | S | Þurrefni |
1 . sláttur | 3,36 | 2,64 | 1,92 | 17 | 0,9 | 1,9 | 58 |
2. sláttur | 4,54 | 3,02 | 2,73 | 18 | 1,5 | 2,5 | 69 |
Meðaltal 1.+ 2.sl. | 3,5 | 2,7 | 2,0 | 17 | 1,0 | 2,0 | 59 |
Grænfóður | 5,8 | 2,6 | 2,4 | 20 | 5,1 | 2,5 | 29 |
Eins og reynslan hefur áður kennt er uppskera úr 2. slætti steinefnaríkari en úr 1. slætti. Athygli vekur að uppskera háarinnar er að jafnaði mun þurrefnisríkari en 1. sláttur.