Staðgreiðsla 2014
Staðgreiðsla skatta er reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur fyrir mánaðartekjur verður sem hér segir:
Af fyrstu 290.000 kr. 37,30%
Af næstu 494.619 kr. 39,74%
Af fjárhæð umfram 784.619 kr. 46,24%
Hér er átt við tekjur eftir að iðgjald í lífeyrissjóð hefur verið dregið frá. Frá reiknuðum skatti dregst persónuafsláttur, sem er 50.498 kr.
Vikulaun
Þegar laun eru greidd vikulega skal reikna staðgreiðslu skatta af launum sem hér segir:
37,30% af fyrstu 66.740* kr.
39,74% af 66.741-180.570** kr.
46,24% af launum umfram 180.570 kr.
Ef laun eru breytileg er heimilt að jafna þeim milli vikna, innan mánaðarins, þannig að staðgreiðsla mánaðarins verði rétt.
Persónuafsláttur á mánuði er 50.498 kr.
Persónuafsláttur ársins 2014 er 605.977 kr. eða 50.498 kr. á mánuði. Við ákvörðun staðgreiðslu opinberra gjalda frá og með 1. janúar 2014 skal því draga persónuafslátt frá reiknuðum skatti sem hér segir:
• Ef launatímabil er einn mánuður 50.498 kr.
• Ef launatímabil er hálfur mánuður 25.249 kr.
• Ef launatímabil er fjórtán dagar 23.243 kr.
• Ef launatímabil er ein vika 11.621 kr.
• Ef launatímabil er annað en að framan greinir skal ákvarða persónuafslátt launatímabils þannig:
Heimilt að nýta 100% afslátt frá maka
Þegar launamaður nýtir skattkort maka síns er launagreiðanda heimilt að nota allan þann persónuafslátt (100%) sem skattkortið veitir rétt til.
Sjómannaafsláttur
Sjómannaafsláttur fellur niður.
Frítekjumark barna er 180.000 kr.
Börn sem fædd eru 1999 og síðar og ná því ekki 16 ára aldri á árinu 2014 greiða 6% skatt án persónuafsláttar af tekjum sínum umfram 180.000 kr. Á skilagreinum RSK 5.12 og sundurliðunum RSK 5.06 eða í vefskilum skal tiltaka heildarlaun án tillits til frádráttar.
Frádráttur vegna iðgjalda í lífeyrissjóð
Greidd lífeyrissjóðsiðgjöld 4% af launum til viðurkenndra lífeyrissjóða samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda eru frádráttarbær og ber að taka mið af því við afdrátt staðgreiðslu. Heimilt er að veita til viðbótar frádrátt allt að 2% af iðgjaldsstofni til aukningar lífeyrisréttinda eða lífeyrissparnaðar samkvæmt ákvörðun sjóðsfélaga, enda séu iðgjöldin greidd reglulega til lífeyrissjóða eða aðila skv. 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Sama gildir um iðgjöld manna sem hafa með höndum atvinnurekstur. Frádráttur vegna iðgjalds í séreignarsjóð hækkar 1. júlí 2014 og verður 4%.
Tryggingagjald o. fl. til staðgreiðslu er 7,59%
Tryggingagjald er 7,49%. Að viðbættu gjaldi í ábyrgðasjóð launa og markaðsgjaldi verður staðgreiðsla þessara gjalda 7,59%. Af launum sjómanna á fiskiskipum greiðast til viðbótar 0,65% í iðgjald vegna slysatryggingar:
• Almennt tryggingagjald 6,04%
• Atvinnutryggingagjald 1,45%
• Tryggingagjald alls 7,49%
• Gjald í ábyrgðarsjóð v/ gjaldþrota 0,05%
• Markaðsgjald 0,05%
• Samtals til staðgreiðslu 7,59%
• Viðbót vegna launa sjómanna 0,65%
• Samtals af launum sjómanna [á fiskiskipum] 8,24%
Um tryggingagjald vegna launa þeirra starfsmanna sem eru með vottorð E -101 gilda sérstakar reglur.