Viðskipti með gróffóður
LEIÐBEININGAR – BÆNDUR – GRÓFFÓÐUR
Fóðurvörur sem framleiddar eru eingöngu til eigin nota að mestu úr heimafengnu hráefni eru ekki háðar eftirliti Matvælastofnunar. Viðskipti með gróffóður sem hefur ekki eða hefur í litlum mæli fengið tæknilega meðhöndlun, t.d. hey, unninn og óunninn hálmur, rótarávextir, kartöflur og grænfóður, eru ekki háð eftirliti Matvælastofnunar, að öðru leyti en því að flutningur á heyjum, heykögglum og hálmi milli bæja innan riðusýktra svæða og áhættusvæða er háður leyfi héraðsdýralæknis.
Verklagsreglur um framleiðslu, meðhöndlun og markaðssetningu á byggi
- Eftir þreskingu þarf að gæta þess að kornið sé þurrkað og/eða verkað á annan hátt á þurrum og hreinum stað þar sem húsdýr hafa ekki verið hýst og hafa ekki aðgang að. Staður þessi skal vera meindýraheldur.
- Einungis skal nota hreina poka/sekki undir korn. Flutningatæki undir korn sem áður hafa verið notuð til að flytja dýr, dýraafurðir eða húsdýraáburð skulu tryggilega sótthreinsuð fyrir notkun.
- Kaup, sala og flutningur á hálmi, lýtur sömu reglum og gilda um flutninga á heyi, sbr. reglugerð nr. 651/2001, um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, með síðari breytingum. Flutningur á hálmi innan og út af sýktum svæðum vegna riðu og garnaveiki er háður skriflegu leyfi viðkomandi héraðsdýralæknis.
Sjá nánar á vefsíðu Matvælastofnunar.
- Óheimilt er að endurnota poka/sekki undan korni sem kemur á fóðurblöndunarstöð eða til annars skráðs söluaðila. Önnur ílát og hverskonar flutningstæki fyrir fóðurvörur skulu þvegin og/eða á annan hátt hreinsuð fullkomlega eftir notkun, áður en þau eru notuð undir fóður þannig að engin blöndun né mengun geti átt sér stað, að því er varðar fóðurefni, óæskileg efni og smitefni.
- Bændur eða aðrir (t.d. þeir sem taka að sér kornþurrkun) sem ætla að setja korn á markað eða selja til fóðurblöndunarstöðva þurfa fyrst að láta skrá sig hjá Matvælastofnun.
- Umsóknir um skráningu skulu sendar Matvælastofnun á þar til gerðum eyðublöðum, sem eru á heimasíðu stofnunarinnar undir Eyðublöð – Fóður. Stofnunin staðfestir skráninguna, hafi henni verið lýst á fullnægjandi hátt.
- Undanskilið ákvæðum um skráningu hjá Matvælastofnun er eftirlitsskylt fóður og fóðurvörur sem bændur framleiða sjálfir á búum sínum til eigin nota eða selja sín á milli, s.s. kornvara, sem ekki hefur eða hefur í litlum mæli fengið tæknilega meðhöndlun og er án hverskonar íblöndunar aukefna annarra en leyfilegra efna til að bæta verkun.
- Nálgast má verklagsreglur í útprentanlegu formi á heimasíðu Matvælastofnunar með því að smella hér.
Textinn hér að ofan er fenginn af heimasíðu Matvælastofnunar (www.mast.is)