Tilkynning vegna búnaðarþingskosninga 2012
Stjórn Búnaðarsambands Suðurlands hefur ákveðið að kosning fulltrúa til búnaðarþings fari fram á aðalfundi Búnaðarsambandsins í samræmi við 13. grein samþykkta Bændasamtaka Íslands. Dagsetning aðalfundar hefur jafnframt verið ákveðin 18. apríl 2012. Komi ekki fram krafa um almenna kosningu í síðasta lagi 6 vikum fyrir aðalfund mun kosning því fara fram á aðalfundinum. Krafa um almenna kosningu þarf því að koma fram í síðasta lagi þann 7. mars n.k. og vera borin fram af a.m.k. 40 atkvæðisbærum félagsmönnum.
Félagatal Búnaðarsambands Suðurlands hefur nú legið frammi á skrifstofum Búnaðarsambandsins frá 25. janúar 2012 og mun liggja frammi til og með 22. febrúar n.k. Hægt er að koma athugasemdum við félagatalið á framfæri á sömu stöðum og það liggur frammi og mun stjórn Búnaðarsambandsins úrskurða um þær að loknum þeim fresti er félagatalið liggur frammi. Telst það þá lögleg kjörskrá.
Í samþykktum Bændasamtaka Íslands er kveðið á um kosningar til búnaðarþings í 13. grein:
„13. grein
Kosning fulltrúa búnaðarsambanda til búnaðarþings skal fara fram með eftirfarandi hætti:
1. Á því ári sem kjósa skal til búnaðarþings skal stjórn búnaðarsambands halda aðalfund fyrir 1. september og auglýsa hann með 8 vikna fyrirvara.
2. Eigi síðar en 12 vikum fyrir aðalfund á kosningaári skal leggja fram félagatal sambandsins. Félagatalið liggi frammi í 4 vikur og skal stjórn búnaðarsambands auglýsa tryggilega hvar það er lagt fram. Þegar stjórn búnaðarsambands hefur úrskurðað um þær athugasemdir sem komið hafa fram við félagatalið telst það lögleg kjörskrá.
3. Þingfulltrúar skulu kosnir í almennri kosningu. Þó getur stjórn búnaðarsambands ákveðið og tilkynnt í auglýsingu um aðalfund að kosning þingfulltrúa muni fara fram á fundinum nema fram komi krafa um almenna kosningu ekki síðar en 6 vikum fyrir aðalfund. Þurfa þá að lágmarki annað hvort 10% eða 20 félagsmenn, sem atkvæðisrétt hafa í búnaðarsambandi, að bera fram slíka kröfu þar sem kosnir eru einn eða tveir fulltrúar. Í þeim búnaðarsamböndum, sem kjósa fleiri en tvo fulltrúa, þurfa annað hvort 10% eða 40 félagsmenn, sem atkvæðisrétt hafa, að bera fram slíka kröfu. Komi krafa um almenna kosningu fram í tæka tíð skal stjórn búnaðarsambands auglýsa það.
4. Þegar fyrir liggur að kosningar verði almennar hafa félagar í búnaðarsambandi, sbr. 11. grein, rétt til að bera fram kjörlista. Skal kjörlisti fram kominn 3 vikum fyrir aðalfund búnaðarsambands. Sömu reglur gilda um fjölda stuðningsmanna við kjörlista og þegar krafist er almennra kosninga sbr. 3. tl.
5. Hafi aðeins borist einn löglegur kjörlisti til stjórnar búnaðarsambands fyrir tilskilinn frest, sbr. 4. tl., það ár sem kosið er, skal stjórn búnaðarsambands gefa tveggja vikna frest til að koma fram með fleiri löglega lista. Skal það auglýst með tryggilegum hætti. Komi ekki fram fleiri listar að frestinum liðnum skoðast listinn sjálfkjörinn og kosningu lokið.
6. Hafi ekki borist krafa um almenna kosningu til stjórnar búnaðarsambands fyrir tilskilinn frest sbr. 3. tl. fer kosning fram á aðalfundi. Ef 1/3 hluti þeirra sem fundinn sitja með fullum réttindum krefst þess skal sú kosning vera hlutbundin en ella óhlutbundin.
7. Fari fram almenn kosning á þingfulltrúum, sbr. 3. tl., skipar stjórn búnaðarsambands kjörstjórn og sér hún um undirbúning kosninga, ákveður kjördag, tilgreinir kjördeildir og kjörstaði, skipar undirkjörstjórnir, ef um fleiri en einn kjörstað er að ræða, og sér um að auglýsa kosningarnar með tryggilegum hætti. Skal kjörstjórn sjá um að gera kjörseðla og dreifa þeim kjördeildir og úrskurða um kjörskrá.
8. Stjórn búnaðarsambands getur ákveðið að almenn kosning samkvæmt 3.tl. skuli vera skrifleg (póstkosning). Þá skal fylgt ákvæðum 7. tl. eftir því sem við á. Yfirkjörstjórn setur að öðru leyti nánari reglur um framkvæmd skriflegra kosninga.
Kjörfundur má eigi standa skemur en í fimm klukkustundir nema allir þeir, sem eru á kjörskrá, hafi greitt atkvæði.
Talning atkvæða skal fara fram eins fljótt og við verður komið þegar atkvæði hafa borist frá undirkjörstjórnum, en þær skulu þegar að loknum kjörfundi senda kjörstjórn kjörgögn með tryggilegum hætti. Kjörstjórn tilkynnir yfirkjörstjórn um úrslit kosninganna að lokinni talningu.
Um framkvæmd kosningar samkvæmt þessari grein gilda að öðru leyti almennar reglur laga um kosningar til Alþingis.“