Tvær reglugerðarbreytingar varðandi sauðfjárrækt
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur nýlega gert tvær reglugerðarbreytingar er varða sauðfjárrækt.
Annars vegar varð gerð lítils háttar breyting á reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landssvæða. Breytingin felst í því að nú er gerð krafa um að þeir sem óska eftir leyfi til að kaupa lömb skv. reglugerðinni þurfa að hafa skráð fjármark.
Hins vegar var reglugerð nr. 423/1979 um varnir gegn útbreiðslu smitandi búfjársjúkdóma í Rangárvallasýslu felld niður. Það er gert með hliðsjón af nýlegri endurskoðun á varnarlínum á svæðinu.