Ullarmat á sæðingahrútum
Nú fer að styttast í að ný Hrútaskrá 2013-2014 líti dagsins ljós. Spennan magnast hjá áhugamönnum um sauðfjárrækt enda skemmtilegur tími framundan í fjárhúsum landsins. Á meðfylgjandi mynd má sjá Eyþór Einarsson ráðunaut hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarains og Emmu Eyþórsdóttur, dósent hjá Landbúnaðarháskóla Íslands meta ullargæði. Emma hefur skrifað ullarlýsingu í Hrútaskrána undanfarin ár, en ráuðunautar RML (áður Búnaðarsambandana og BÍ) skrifað umsagnir.
Áætlað er að hrútaskráin komi út um 20. nóvember, en nánar verður sagt frá því hér á síðunni.