Ungi bóndi ársins 2013
Ungi bóndi ársins 2013 var haldinn 17. ágúst í tengslum við sveitahátíðina Tvær úr Tungunum í Reykholti. Hlutskarpastur í einstaklingskeppninni var Ágúst Helgi Sigurðsson, Sóleyjarbakka, en hann var líka í liði sunnlendinga sem vann liðakeppnina. Lið sunnlendinga var skipað auk Ágústs þau Haraldur Ívar Guðmundsson, Reykhóli, Jón Hjalti Eiríksson, Gígjarhólskoti og Bryndís Eva Óskarsdóttir, Háholti.
Keppnin í ár var sú fimmta í röðinni og sú fyrsta á Suðurlandi. Liðin þurftu að keppa í hraðabraut sem fól m.a. í sér hopp og skrið undir rafmagnsgirðingu, að þræða sláturnál og kasta skeifum. Einnig reyndi á samvinnu liðanna í rúlluveltu og um kvöldið var keppt í barsvari með sveitatengdum spurningum. Veglegir vinningar voru í boði frá fjölmörgum fyrirtækum. Nánar um keppnina og myndir á ungurbondi.is