Fóðrun hrossa
Fóðurþarfir hrossa
Orkuþarfir til viðhalds
Orkuþarfir til viðhalds er sú orka sem þarf til þess að halda hesti/hrossi í orkujafnvægi (án brúkunar). Orkuþörf fer eftir stærð og þunga. Samkvæmt evrópska fóðurmatskerfinu eru orkuþarfir minni hestakynja reiknaðar á eftirfarandi hátt: FEh til viðhalds = 0,037 x Þ0,75 þar sem Þ stendur fyrir þunga hestsins í kg.
Próteinþarfir til viðhalds
Daglegar próteinþarfir hests til viðhalds eru nálægt 70 g meltanlegs hrápróteins fyrir hver 100 kg í þunga. Reikna má daglega próteinþörf fullorðinna hesta til viðhalds á eftirfarandi hátt: 3 g meltanl. hráprótein x Þ0,75 þar sem Þ er þungi hestsins í kg.
Orku- og próteinþarfir fullorðinna hesta til viðhalds
Orku- og próteinþarfir fullorðinna hesta til viðhalds |
|||
Þungi, kg | FE | FEh | g mph/dag* |
250 | 2,6 | 2,3 | 189 |
300 | 2,9 | 2,7 | 216 |
350 | 3,3 | 3,0 | 242 |
400 | 3,6 | 3,3 | 268 |
*mph=meltanlegt hráprótein |
Meðalþungi íslenskra hrossa er um 370 kg og daglegar viðhaldsþarfir því nálægt 3,1 FEh og 250 g próteins. Alltaf skal taka tillit til holdafars og ásigkomulags við mat á fóðurþörfum og einungis nota staðalgildi til viðmiðunar.
Orkuþarfir vegna brúkunar Til viðmiðunar þarf að bæta eftirfarandi við viðhaldsfóður brúkunarhrossa |
|
Við létta brúkun | 25% eða 0,5 FEh/klst. í hægri reið |
Við talsverða brúkun | 50% eða 1,0 FEh/klst. á milliferð (brokk eða tölt) |
Við mikla brúkun | 75% eða 1,5 FEh/klst. í hraðri reið eða strangri þjálfun |
Við mjög erfiða brúkun | 100% í strangri þjálfun eða keppni |
Orku- og próteinþarfir unghrossa til viðhalds og vaxtar |
|||
Aldur | Þungi, kg | FEh/dag | g próteins/FEh |
Tryppi á 1. vetri | 130-220 | 3,0-3,5 | 140 |
Tryppi á 2. vetri | 210-320 | 3,1-4,0 | 130 |
Tryppi á 3. vetri | 250-350 | 3,0-4,0 | 120 |
Tryppi á 4. vetri | 280-380 | 3,0-4,2 | 100* |
*Tryppi í tamningu |
Steinefnaþarfir hrossa
Áætlaðar steinefna- og vítamínþarfir hrossa |
|
Kalsíum (Ca) | 6-9 g/FEh |
Fosfór (P) | 5-7 g/FEh |
Natríum (Na) | 1,5-2 g/FEh |
Magnesíum (Mg) | 1,5-2 g/FEh |
Selen (Se) | 0,05-0,1 mg/FEh |
A-vítamín | 5.000 a.e./FEh |
D-vítamín | 500 a.e./FEh |
E-vítamín | 50 mg/FEh |
Hærri gildin í töflunni eiga einkum við hross í vexti, mikilli brúkun (stífri þjálfun), á meðgöngu og mjólkurskeiði. |
Helstu heimildir:
Ingimar Sveinsson 2003: Fóðurþörf og fóðrun hrossa. Handbók bænda 53: 131-132.