Viðmiðunarverð kindakjöts 2009
Landssamtök sauðfjárbænda gefa út viðmiðunarverð á kindakjöti fyrir yfirstandandi ár. Samtökin hafa heimild til þess samkvæmt búvörulögum þrátt fyrir að ekki sé um opinbera verðlagningu að ræða.
Vegið meðalverð hækkar um 11% frá síðustu verðskrá sem gefin var út í apríl 2008. Samkvæmt henni verður meðalverð til bænda fyrir dilkakjöt tæpar 475 kr/kg (án vsk) í haust en rúmar 147 kr/kg fyrir kjöt af fullorðnu fé. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um tæp 15% frá útgáfu síðustu verðskrár en í ljósi erfiðrar stöðu á kjötmarkaði var ákveðið að ganga ekki lengra nú.
Mesta breytingin felst í því að ekki er lengur gefið út viðmiðunarverð fyrir dilkakjöt til útflutnings en bændur hafa fengið minna greitt fyrir það en kjöt á innanlandsmarkað. Útflutningsskylda á dilkakjöti er fallin niður en mun hagstæðara er nú að flytja út en þegar viðmiðunarverð var síðast gefið út vegna gengisfalls íslensku krónunnar. Hækkunin kemur að mestu fram í því að útflutningsverðið er hækkað upp í innanlandsverð en verðskráin fyrir kjöt á innanlandsmarkað hækkar aðeins rúm 2% frá fyrra ári.
Viðmiðunarverð Landssamtaka sauðfjárbænda fyrir árið 2009
Dilkakjöt kr/kg
Flokkar | 1 | 2 | 3 | 3+ | 4 | 5 |
E | 520 | 520 | 501 | 455 | 346 | 322 |
U | 519 | 517 | 501 | 455 | 343 | 315 |
R | 482 | 496 | 469 | 393 | 315 | 306 |
O | 424 | 471 | 414 | 380 | 229 | 229 |
P | 379 | 379 | 229 | 229 | 229 | 229 |
Kjöt af fullorðnum gripum kr/kg
Flokkar | 1 | 2 | 3 | 3+ | 4 | 5 |
VR | – | – | 413 | – | 355 | – |
VP | 182 | – | – | – | – | – |
VHR | – | – | 78 | – | 47 | – |
VHP | 56 | – | – | – | – | – |
FR | – | – | 139 | – | 68 | – |
FP | 60 | – | – | – | – | – |
Verðtaflan er gefin út af Landssamtökum sauðfjárbænda skv. heimild í 8.gr laga nr. 99/1993
Samtökin áskilja sér rétt til breytinga síðar á árinu ef aðstæður gefa tilefni til