Niðurstöður úr gróðursýnum 1. júní 2010
Greind hafa verið sýni sem tekin voru á völdum bæjum á öskufallssvæðinu 1. júní 2010. Flúorstyrkur í sýnnuum er mældur á Nýsköpunarmiðstöð Íslands af Hermanni Þórðarsyni og Helga Frímanni Magnússyni en undirbúningur sýna fer fram á Rannsóknastofunni á Hvanneyri af Elísabetu Axelsdóttur.
Samkvæmt niðurstöðunum er ekki ástæða til þess að óttast flúormengun í gróðri eins og staðan er. Þolmörk nautgripa og sauðfjár eru 30-40 mg/kg F þurrefnis og 70-100 mg/kg F þurrefnis hjá sauðfé. Öll sýni mældust neðan þolmarka sauðfjár, nautgripa og hrossa.

