Samanburður á heysýnum m.t.t. snefilefna
Samanburður á hluta heysýna 2003 og 2010 með tilliti til kopar, járns og mangan
Af fyrsta slætti voru 200 heysýni snefilefnagreind frá árinu 2003. Sýnin voru úr öllum landshlutum en umfang landbúnaðar á hverju svæði hafði árif á fjölda sýna. 20 sýni voru úr Árnessýslu, 21 úr Rangárvallasýslu og 9 úr V-Skaftafellssýslu. Þessar niðurstöður eru svo notaðar til að bera saman hluta af heysýnum sem tekin voru á Suðurlandi nú í sumar. Sýnin voru greind aftur þá með tilliti til járns, mangans og kopars. Hér fyrir neðan má sjá samanburð milli sýslna á heysýnum frá 2003 og 2010
Tafla 1. Samanburður á kopar, járni og mangan milli sýslna frá árinu 2003 og 2010. | |||||||||
2003 | 2010 | ||||||||
Sýsla | Fjöldi | Cu | Fe | Mn |
| Fjöldi | Cu | Fe | Mn |
V -Skaft. | 9 | 6 | 270 | 85 | V-Skaft. | 6 | 6 | 328 | 62 |
Rangárv. | 21 | 6 | 132 | 74 | Rangárv. | 31 | 7 | 625 | 67 |
Árness. | 20 | 7 | 229 | 91 | Árness. | 9 | 7 | 265 | 59 |
Kopar er eins í sýslunum nema í Rangárvallasýslu. þar er kopar 1 mg/kg þ.e. hærra árið 2010 en árið 2003. Járn er hærra árið 2010 í öllum sýslunum, þar munar mestu í Rangárvallasýslu. eða 493 mg/kg þ.e. Mangan er í öllum sýslunum lægra árið 2010 og er mestur munur í Árnessýslu eða 32 mg/kg þ.e. Minnstur munur er í Rangárvallarsýslu eða 7 mg/kg þ.e.
Tafla 2. Flokkun heysýna eftir styrk snefilefna (mg/kg þe.) | ||||||
Mótvirkni gegn nýtingu Cu |
||||||
Skortur |
Á mörkum |
Viðunandi |
Nokkur |
Mikil |
Eitrunarmörk | |
Cu – Kopar | <4,0 |
4,0-9,9 |
> 10 |
|
|
100 |
Fe – Járn | <50 |
|
50-200 |
>200-400 |
> 400 |
1.000 |
Mn – Mangan | <20 |
20-39,9 |
> 40 |
|
|
1.000 |
Samkvæmt töflu 3 þá er kopar og mangan árið 2010 á mörkum eða viðunandi í sýslunum þremur en járnið er hinsvegar yfir viðunandi mörkum og getur haft nokkra eða mikill áhrif á nýtingu kopars.
Mikilvægt er að kynna sér framboð af stein- og bætiefnum sem taka tillit til of mikils járns í fóðri sem í boði eru hjá fóðursölufyrirtækjunum.
Heimildir: U nnið upp úr grein Styrkur snefilefna í heyi, Fræðaþing landbúnaðarins 2006. http://www.landbunadur.is/landbunadur/wgsamvef.nsf/key2/index.html