Fréttabréf
Búnaðarsamband Suðurlands gaf út fréttabréf um árabil. Um áramótin 2012/2013 var útgáfu hætt í framhaldi af flutningi starfsemi ráðunautaþjónustunnar yfir til Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Fréttabréfinu var dreift í dreifbýli á Suðurlandi og fagstofnunum landbúnaðarins endurgjaldslaust. Aðrir fengu það sent gegn vægu gjaldi.
Fréttabréf BSSL kom út í 8-10 tölublöðum á ári. Hægt er að nálgast vefútgáfur af fréttabréfunum frá 2004 hér á síðunni.
Síðasta ritstjórn bréfsins var skipuð Guðmundi Jóhannessyni og Margréti Ingjaldsdóttur .
Ábyrgðarmaður Fréttabréfs BSSL er Sveinn Sigumundsson, framkvæmdastjóri, sveinn@bssl.is .
Fréttabréf BBSL hefur alþjóðlega tímaritsnúmerið ISSN 1605-7546.