Veffræðsla LK – Frá smákálfi til mjólkurkýr
Frá smákálfi til mjólkurkýr er annar fyrirlestur vetrarins. Fyrirlesari er Grétar Hrafn Harðarson tilraunastjóri LBHÍ á Stóra-Ármóti. Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 20. október 2014.
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út þriðja árið í röð. Tilraunaárin tvö eru liðin og ánægjan það mikil að ákveðið var að halda áfram. Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim hafa verið sendir út. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is