Veffræðsla LK Nautakjötsframleiðsla
Fyrsti fyrirlesturinn í vetur er um nautakjötsframleiðslu og er það Þóroddur Sveinsson tilraunastjóri LBHÍ á Möðruvöllum. Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 7. október.
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út á sínu öðru tilraunaári verkefnisins, en síðasta ár gekk vonum framar. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim sem við sendum út í fyrra. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is