Veffræðsla LK – Starfsárið framundan, að loknum aðalfundi LK
Starfsárið framundan – að loknum aðalfundi LK er fimmtándi fyrirlesturinn á þessum vetri. Fyrirlesari er Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri hjá Landssambandi kúabænda. Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 28. apríl 2014.
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út á sínu öðru tilraunaári verkefnisins, en síðasta ár gekk vonum framar. Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim sem við sendum út í fyrra. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is