Vinnuverndar- og réttindanámskeið fyrir bændur
Í febrúar stendur Vinnueftirlitið í samstarfi við Búnaðarsamband Suðurlands, fyrir tveggja daga bóklegu vinnuverndar- og réttindanámskeiði fyrir bændur. Námskeiðið er ætlað bændum og þeim sem vinna við búskap en er einnig opið öðrum áhugasömum. Skráning er hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á www.lbhi.is/namskeid, netfangið endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000.
Eins og fyrr segir er þetta tveggja daga bóklegt námskeið sem veitir réttindi til að taka verklegt vinnuvélapróf á dráttarvélar, liðléttinga og ýmsar minni gerðir vinnuvéla í réttindaflokki „I“ og lyfturum í flokki „J“, þar með talið skotbómulyftara. Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum. Einnig verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað.
Ávinningur: Bókleg réttindi á vinnuvélar í réttindaflokkum „I“ og „J“. Aukin þekking á vinnuverndarmálum og hvernig á að gera áhættumat starfa. Námskeiðinu líkur með skriflegu krossaprófi.
Kennarar: Starfsmenn Vinnueftirlitsins.
Tími: Boðið verður upp á þrjú námskeið á Suðurlandi:
I: Mið. 5. feb, kl. 10:00-17:00 og fim. 6. feb. kl. 10:00-17:00 hjá Kaffi Sel við Flúðir.
II: Mið. 12. feb, kl. 10:00-17:00 og fim. 13. feb. kl. 10:00-17:00 hjá Fræðsluneti Suðurlands á Hvolsvelli.
II: Fim. 20. feb, kl. 10:00-17:00 og fös. 21. feb. kl. 10:00-17:00 á Hótel Geirlandi við Kirkjubæjarklaustur.
Verð: 34.900kr (bókleg kennsla, kennslugögn, veitingar og bóklegt próf er innifalið í verði)
Verklegt próf og skírteini: Verklegt próf og skírteini kosta 12.380kr, ef tekið er próf fyrir bæði „l“ og „J“ flokk er verðið 17.630kr, sem greiðist hjá Vinnueftirlitinu.
Skráðu þig núna á www.lbhi.is/namskeid – endurmenntun@lbhi.is – í síma 433 5000